Árgangur 1976

12.01.2010 19:58:18 / gudbjorn

Árgangsmót 2012

Við höfum ákveðið að halda okkur við 5 ára regluna og halda árgangsmótið árið 2012. Dagsetning auglýst síðar :)
Kveðja nefndin...


» 16 hafa sagt sína skoðun

29.10.2007 19:10:40 / gudbjorn

Gærumafían kemur með hugmynd

Sælir lesendur góðir

Það eru nú ekki margir sem koma hér inn núorðið en ákvaðum nú samt að koma með smá færslu.

Við erum að hugsa um að hafa næsta árgangsmót þann 8 mai 2010 það er eftir 3 ár. Hvernig lýst ykkur á það????

Það voru svo margir sem komust ekki núna svo að við ákváðum að koma með þessa hugmynd. Hitti t.d Tóta Ólafs um daginn og honum fannst þetta bara ágætis hugmynd skal ég ykkur segja. Svo hvað segið þið um þetta allt saman??? Vera bara dugleg að kommenta og endilega segið ykkar skoðun....

Kveðja frá Gærumafíunni


» 29 hafa sagt sína skoðun

19.09.2007 19:41:31 / gudbjorn

Listi over The folks

Helló allir saman og takk fyrir síðast. Skemmti mér alveg ágætlega en hefði viljað hafa meira þol og nennir til að vera þarna lengur, var komin heldur snemma heim að mínu mati.....

En þar sem að ég og minn saumaklúbbur ásamt Dísunni erum í næstu nefnd að þá langar mig að biðja fráfarandi stjórn um að senda mér listana yfir bekkina með öllum nöfnum og símanúmerum og þess háttar. Það hlýtur að auðvelda okkur alla þá vinnu sem þið hafið unnið ;) Meilið mitt er gussa76@hotmail.com og gott væri að fá þetta fljótlega svo að það ekki gleymist.

Hlakka til að sjá ykkur eftir allavega 5 ár ef ekki fyrr, allt of langt á milli þessara móta, eigum við ekki að minnka það niður í 3 ár ???? Nei bara spurning..... :)

Takk í bili og eigið glaðan dag

Kveðja Guðrún Hallfríður


» 23 hafa sagt sína skoðun

05.09.2007 18:18:28 / gerdur

Maður mótsins

Nefndin hefur ákveðið að brydda upp á þeirri nýjung að útnefna mann mótsins. Titilinn að þessu sinni hlýtur Jón Frímann Eiríksson sem kemur líklega fæstum á óvart. Hann kom virkilega vel gíraður til leiks og má sjá brot af stórkostlegri frammistöðu hans í myndaalbúminu ,,Maður mótsins".

http://blog.central.is/akranes76//index.php?page=albums&action=showalbum&id=67111


» 14 hafa sagt sína skoðun

04.09.2007 11:06:51 / gerdur

Sakamál

Hvaða svívirðilegi skúrkur setti inn 10-8 albúmið???

http://blog.central.is/akranes76/index.php?page=albums&action=showalbum&id=67133

Kveðja, Nefndin

Ps. Tóti. Ég vil svo biðja þig um að vera aðeins rólegri í bjórnum í hálfleik næst þegar við mætum Grundó.


» 16 hafa sagt sína skoðun

03.09.2007 09:59:55 / gerdur

Ljósmyndir

Arnar Valdimars hefur sett á netið geysiflottar og skemmtilegar myndir sem hann tók á mótinu:

http://flickr.com/photos/akranes76/

Það væri einnig gaman að fá sendar fleiri myndir frá þeim sem voru með vélina á lofti.

Kveðja,
Gamla nefndin


» 10 hafa sagt sína skoðun

02.09.2007 16:45:46 / gerdur

Að leikslokum

Þá er þriðja árgangsmóti okkar Fabulous '76 lokið og ekki laust við að maður sé þegar farinn að hlakka til þess næsta, þrátt fyrir eilitla timburmenn. En eftir einn ískaldan Carlsberg og hressilega þynnkuskitu er maður að verða eins og nýsleginn túskildingur.

Mótið þótti takast í alla staði ákaflega vel og viljum við strákarnir í nefndinni nota tækifærið hér og þakka Gerði sérstaklega vel og innilega fyrir allt í sambandi við undirbúning mótsins en eins og kannski flesta grunar var hún potturinn og pannan í þessu öllu saman. Einnig viljum við þakka Guðrúnu Rósu fyrir sína fórnfúsu aðstoð. Eins viljum við hrósa kokkunum fyrir frábæran mat en það sást til fólks vera að gæða sér að veitingunum langt fram á nótt.

Þrátt fyrir gríðarlegt fjör hefði verið enn meira gaman að sjá fleiri og fyrir næsta mót má fólk alveg vera duglegra að hringja í hvort annað í sínum bekkjum eða gömlu vinahópum til að byggja upp stemningu. Sérstök mætingaverðlaun að þessu sinni fær GÞ bekkurinn úr Brekkó með 14 en fast á hæla þeirra kom RE bekkurinn, einnig úr Brekkó, með 13 en tveir forfölluðust þar á síðustu stundu vegna veikinda, Steinsmuguskitu nánar tiltekið, sem kostuðu RE sigurinn. Aðrir bekkir þurfa að girða í brók.

Nú Grundverjar voru hins vegar vel girtir í knattspyrnuleiknum og stóðu sig með mikilli prýði en þeir unnu í æsispennandi og hnífjöfnum leik, 10-8, þar sem Jón Frímann markakóngur fór mikinn í sókninni. Að vísu fékk Brekkó Frímanninn lánaðan í seinni hálfleik en það dugði ekki til þrátt fyrir 4 mörk frá honum. Mark leiksins skoraði Gunnar Örvar með glæsilegri bakfallsspyrnu sem var þó ekki alveg bakfallsspyrna en samt mjög flott miðað við fólk á okkar aldri. Sparksérfræðingar höfðu reyndar fyrir leikinn spáð villingunum í Brekkó auðveldum sigri þannig að sigur Grundverja kom talsvert á óvart. Ýmsar góðar ástæður liggja að baki sem verða þó ekki tíundaðar hér. Eins og t.d. sú að Eiki miðjusnillingur mætti of seint því hann ætlaði að mæta of snemma en varð fyrir því óhappi að kyrrstæður bíll kastaðist einhvern veginn aftan á hans bíl. Hann náði því ekki að setja mark sitt á leikinn. En allavega... Brekkóbomburnar munu mæta trylltar til leiks næst til að reyna að ná bikarnum til baka en fráfarandi nefnd leggur til að keppt verði frekar í badminton þá. Skoðum það eftir 5 ár.

Báðir skólar stóðu sig frábærlega í gleðinni og var tjúttað til klukkan 03:00 undir glymjandi rokkundirspil að hætti Rásar 2. Að sögn DJ Óla diskó hefur hann ekki séð jafn mikla stemningu á dansgólfinu í langa herrans tíð. Einn af hápunktum kvöldsins var einmitt danssýning Þórarins Ólafsonar undir Ace of Spades með Motörhead. Nefndin sat svo ásamt mestu rokkhundunum til klukkan 05:00 þar sem farið var yfir ,,hin ýmsu mál" sem á daga okkar hafa drifið. En förum ekki nánar út í það.

Rokkhundur árgangsins var valinn Silja Ósk Björnsdóttir sem hreinlega neitaði að fara heim fyrr en síðasti bjórinn var búinn.

Ný skemmtinefnd var kjörinn til að sjá um næsta mót en það eru kjarnastúlkurnar og snillingarnir: Finndís, Guðrún Hallfríður, Helga Dís, Rósa Björk og Þura. Hefur þessi nýja nefnd tekið upp vinnuheitið ,,Gærumafían" og megum við eiga von á gríðarlega skemmtilegu móti frá þeim. Þær vita að þær eiga erfitt verk fyrir höndum að reyna að toppa nýliðið mót en ef einhverjar geta það, þá eru það þær.

Þangað til.. Verið hress, ekkert stress og bless bless.. já og gleymdi næstum. Brekkó rúlar muthafokkas!
Kveðja, Strákarnir í nefndinni
Sturri, Gunni og Hlöbbi.


» 24 hafa sagt sína skoðun

01.09.2007 17:31:20 / gerdur

Djammið að fara að byrja og úrslit í æsispennandi fótboltakeppni

Jæja, þá er dagurinn runninn upp.

Geggjuð stemmning komin í liðið og helmingur hópsins mætti á fótboltakeppni sem endaði með sigri (ég segi ekki stórsigri) Grundaskólamanna. Verð að taka fram að grundskælingar skoruðu flest mörkin þar sem 2 þeirra fengu að spila beggja vegna borðsins.

Til hammó með bikarinn Grundó!!! Þetta var burst.

Hlakka til að sjá ykkur í kvöld, skál!!!

F.h. nefndarinnar

Gerður

 


» 14 hafa sagt sína skoðun

28.08.2007 23:10:25 / gerdur

Staðan

Stemningin er að ná hámarki. Grundverjar hafa girt í brók og gera harða atlögu að Brekkó. Staðan er 28-17 í alveg æsispennandi keppni. 

Grundó (17)
Pétur Guðmundsson,
Silja Ósk Björnsdóttir
Ingólfur Arnar Björnsson
Gunnar Örvar Helgason
Þorbjörg Sólbjartsdóttir
Þórarinn Ólafsson
Finndís Helga Ólafsdóttir,
Jón Frímann Eiríksson,
Kjartan Friðriksson
Halldór Hrannar Halldórsson,
Jón Gunnar Mýrdal Gunnarsson
Ragnar Már Valsson
Jón Ævar Pálmason
Helga Dís
Rósa Björk
Guðmundur Valgeirsson,
Gunnar Sigurðsson

Brekkó ( 28 )
Eiríkur Jónsson,
Guðrún Rósa Björnsdóttir
Jórunn María Ólafsdóttir
Hákon Baldur Hafsteinsson,
Anna Þóra Viðarsdóttir
Harpa Einarsdóttir
Helga Björk Jónsdóttir
Þura Björk Hreinsdóttir
Valdís Eyjólfsdóttir
Arnar Valdimarsson
Hjörleifur Friðrik Þórarinsson,
Trausti Harðarson
Reynir Georgsson
Valey Benediktsdóttir
Guðrún Högnadóttir
Sigríður Lára Guðbjartsdóttir
Þórarinn Ægir Jónsson
Rúnar Magni Jónsson
Dóra Þórsdóttir
Þórður Guðmundsson
Hlöðver Geir Tómasson
Guðrún Hallfríður Björnsdóttir
Freyr Breiðfjörð Garðarsson
Hrefna Ásgeirsdóttir
Steinar Hagalín Ásbjörnsson
Rúna Hrönn Kristjánsdóttir
Ole Jakob Volden
Gerður Jóhanna Jóhannsdóttir

Hringið í alla sem þið þekkið og eru ekki á komnir á listann og segið þeim að taka puttann úr gö.... og dröllast til að keypa miða ASAP. TF-Stuð er að fara í loftið.. jíha!

Kveðja,
Nefndin


» 25 hafa sagt sína skoðun

26.08.2007 21:14:57 / gerdur

Brekkó 20 - Grundó 10

Eftirfarandi 30 eðalsnillingar eru búnir að greiða þátttökugjaldið og fá góð sæti í Jónsbúð. Einhverjir fleiri eru búnir að melda sig inn en eiga eftir að borga!!

Grundó ( 10 )
Ingólfur Arnar Björnsson
Gunnar Örvar Helgason
Þorbjörg Sólbjartsdóttir
Þórarinn Ólafsson
Finndís Helga Ólafsdóttir, Jón Frímann Eiríksson, Kjartan Friðriksson
Halldór Hrannar Halldórsson, Jón Gunnar Mýrdal Gunnarsson og Ragnar Már Valsson

 

Brekkó (20)
Valdís Eyjólfsdóttir, Arnar Valdimarsson, Hjörleifur Fr. Þórarinsson, Helga Björk Jónsdóttir

Guðmundur Reynir Georgsson
Valey Benediktsdóttir
Guðrún Högnadóttir
Sigríður Lára Guðbjartsdóttir
Þórarinn Ægir Jónsson
Rúnar Magni Jónsson
Dóra Þórsdóttir
Þórður Guðmundsson
Hlöðver Geir Tómasson
Guðrún Hallfríður Björnsdóttir
Freyr Breiðfjörð Garðarsson
Hrefna Ásgeirsdóttir
Steinar Hagalín Ásbjörnsson
Rúna Hrönn Kristjánsdóttir
Ole Jakob Volden
Gerður Jóhanna Jóhannsdóttir

Það er ljóst að stemmarinn er talsvert betri hjá Brekkó en mætti að ósekju vera meiri. Hvort þessar tölur gefi fyrirheit um úrslitin í knattspyrnuleiknum skal ósagt látið... en ekki ólíklegt samt.

Þröstur bankastjóri mun byrja að reikna ofurvexti eftir 27. þannig að pay-up muthafokkas! :^)

Kveðja,
Nefndin

Ps.
Rósa! Bonga strax, ellegar verður þú útilokuð af blogginu.


» 20 hafa sagt sína skoðun

23.08.2007 23:08:49 / gerdur

Jæja, jæja

HÆ, hæ.

Nú er að koma í ljós mætingin hjá G.Þ. bekknum úr Brekkó.

Koma Pottþétt :haha: :Arnar, Eiki, Gerður, Guðrún Rósa, Guðrún Högnad., Reynir, Hákon, Jórunn, Rúnar, Sigga, Valdís, Valey, Þórður og Þura.

Koma kannski ;) : Anna Þóra, Einar Mýrdal, Hrund og Lilja.

Næst ekki í: Ólafur Hallur, svarar ekki. Hef ekki heyrt neitt í Jóa.

Koma ekki: Bergur, Bjössi, Elva, Rannveig, Þórhildur og Örn.

 Hlakka geggjað til þess að sjá ykkur öll :haha::haha:

Kveðja, Gerður


» 24 hafa sagt sína skoðun

22.08.2007 17:50:13 / gudbjorn

Jæja

Að beiðn Hlöðvers set ég hér inn hverjir það eru sem hafa haft samband við hann og látið vita hverjir koma og hverjir ekki og hverjir hafa ekki látið vita úr R.E bekknum. Svo hér kemur það...

 

Mæta: Dóra, Einar Jóel, Freysi, Guðrún Hallfríður, Hlöðver, Hrefna, Ole Jakob, Rúna Hrönn

Steinar, Tóti, Helga Björk

Kannski: Palli, Trausti

Komast ekki:

Arna María, Elín Dröfn, Ella, Erla, Sólrún, Rúna Björk

Eftir að láta vita:

Gummi Þór, Harpa Einars, Helgi, Hjölli, Inga, Pálmi Sveinn, Sigrún, Svavar

Vésteinn, Þórey

Svo ef að þið rekist á einhvern af þessum aðilum endielga minnið þau á

Kveðja Hlöðver og Guzzan

Ps. hlakka ógó mikið til er meira segja búin að borga og alles


» 26 hafa sagt sína skoðun

16.08.2007 21:26:25 / gudbjorn

Myndir !!!

Jæja eins og allir sjá að þá er komið að árgangsmótinu og hefur Ole tekið að sér að búa til myndasjóv. Þeir sem eiga myndir endilega sendið á volden@isl.is">ovolden@isl.is eða hringið í síma 690-9223 og hafið samband við hann svo að það verði nú eitthvað að góðum myndum.

Takk takk

 


» 28 hafa sagt sína skoðun

16.08.2007 10:43:19 / gerdur

Money - money - Money

:haha:

Ætla ekki ALLIR að koma. Meldið ykkur inn með því að senda tp. á gerdurj@akranes.is

Vinsamlega leggið inn ykkar skerf, 4000 kr sem fyrst. Í síðasta lagi 27. ágúst.

Reikningsnúmerið er: 0330-13-5689

Kennitalan er: 271076-5689

Setjið ykkar eigin kennitölu í skýringu og sendið kvittun á ht@hugurax.is

Ef þið gerið þetta ekki gegnum heimabanka þá vinsamlega takið samt sem áður kennitöluna ykkar fram í skýringu.

Bestu kveðjur

Stjórnin


» 15 hafa sagt sína skoðun

15.08.2007 22:13:54 / gerdur

Árgangspartý - - - - Dagskrá

Dagskrá:

 :):):):):):):):):):):):):):):):):):):) :):):):):):):):):):):):):):):):):):):) :):):):):):):):):):):):):):):):):):):) 

Kl. 16. 00. Brekkubæjarskóli skorar á Grundaskóla í fótbolta.                   Mæting á gerfigrasvöllinn við Grundaskóla. Vantar dómaraflautu. Skorað Gumma Valgeirs að mæta í dómarabúning og dæma!!! (Ef þú vilt spila Gummi, þá má semja um það).  

Kl. 19. 00.  Húsið opnar:   Mæting í Jónsbúð á Akranesi !!!

Kl. 20. 00.  Smáréttir bornir fram.

Kl. 20. 30.  Dagskrá hefst. Myndasýning.  

Nokkrir leikir teknir til að hressa upp á liðið. Skemmtiatriði bekkjanna:

F. E.

G. G.

G. Þ.

R. Á.

R. E. 

Bikarafhending – verðlaunaliðið úr fótboltakeppni krýnt. 

Kl.    22. 30. DJ Óli Palli tekur völdin.  

Verð: 4000 kr. á manninn.  

Borgist í síðasta lagi 27. ágúst 2007. 

Reikningsnúmer verður sett inn í fyrramálið.


» 17 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Dagsetning
23. febrúar 2012
RSS tengill